30.7.2008 | 22:51
Bongó!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.7.2008 | 14:22
Veðurblíðan!
Við hjónakornin höfum haft það notalegt síðustu daga. Bubbi og Malla litu við í gærmorgun og fengu sér sopa með okkur á pallinum áður en þau fóru í veiði. Eftir hádegi renndum við út í Höfðahverfi þar sem við tókum einn golfhring á Hvammsvelli. Eftir golfið fórum við í kaffi til Oddu og áttum gott spjall. Pétur Þór tók að vanda vel á móti frænku sinni, allaf jafngaman að vera með honum litla skottinu. Heim komum við að ganga fimm. Veðrið var náttúrulega með eindæmum gott, yfir 20 stiga hiti og blíða.
Þegar við vöknuðum í morgun var veðrið ekki verra en í gær. Sól skein í heiði og heljarinnar golfveður. Eftir kaffið fórum við sem sagt inn á Þverá og tókum einn hring. Ég stóð mig þokkalega, náði meðal annars að para tvær, aðrar þurftu fimm og sex högg. Árangur Vals var ekki eins góður, en svona er golfið, ekki alltaf rétti dagurinn. Valur var að fara með hjólið sitt í skoðun og held ég að mitt fari á morgun. Við höfum verið heldur léleg í akstrinum í sumar, mest af fríinu farið í smíðar. En það kemur sumar eftir þetta auk þess sem þessu eru ekki lokið enn.
Held ég láti þetta duga í dag, kominn tími til að skella sér út á pallinn með kaffi og bók. Farið vel með ykkur elskurnar mínar!
27.7.2008 | 11:51
Sældarlíf!
Við tókum daginn rólega í gær, fórum í golf og sátum svo bara í sólinni eftir hádegi. Ég fór reyndar í kaffi til Ágústar litla en hann fékk bæjarleyfi einhverja klukkutíma og auðvitað fögnuðu vinir og ættingja með honum. Framfarirnar eru með eindæmum, andlitið að verða þekkjanlegt, mar og særindi í litla kroppnum á undanhaldi. Hann virðist mér gömul sál blessaður, tekur öllu með jafnaðargeði og er eins og ég hef sagt áður ótrúlega duglegur. Verst ég gleymdi að hafa með mér myndavélina.
Ekki má nú gleyma því að Addi mágur minn varð fertugur í gær. Til hamingju Addi minn og mundu að allt er fertugum fært!
Seinnipartinn komu ættingjar Vals í grillveislu. Við snæddum náttúrulega úti, enda léku veðurguðirnir við okkur. Eftir að gestirnir fóru heim skellti unga fólkið sér í pottinn, ég bættist í hópinn um ellefuleytið. Um miðnætti komu Doddi og Tanya, hann keyrði krakkana upp í Bjarkarstíg að sækja bílinn hans Bubba (bróður) þar sem þeir ætluðu að skella sér á rúntinn. Valur, Doddi og Tanya fóru þá í pottinn en ég sat undir hitaranum og naut veðurblíðunnar. Hjónakornin héldu heim á leið að ganga þrjú og þegar við vorum að hafa okkur í háttinn renndi unga fólkið að húsinu. Valur fór að leggja sig en ég var áfram á róli og fann eitthvað handa þeim að borða. Kannske ekkert mjög hollt að borða um miðja nótt, en hvað með það, stundum þarf að gera undantekningar. Ég fór ekki í bólið fyrr en klukkan að ganga fimm í nótt, svaf eins og engill til klukkan að verða ellefu. Svona á lífið að vera. Hér eru myndir.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.7.2008 | 21:42
Maður er manns gaman!
Heilmikið fjör verið hér í Stafholtinu síðustu daga. Ég gleymdi því í gær að geta þess að Athena Líf dótturdóttir Gudda bróður varð eins árs og hélt auðvitað heljarinnar veislu heima hjá ömmu og afa en þar er hún stödd ásamt móður og bróður. Til hamingju með daginn litla skottan mín, hér eru sko afmælisblöðrur bara fyrir þig!
Við tókum daginn snemma, Valur fór strax í að ljúka við að tengja ljósin hér úti, ég var mest að dunda við að þvo þvott og hengja út. Merkilegt hvað þarf að þvo af þremur hræðum, held þó að flestar séu flíkurnar af syninum, en hann á erfitt með að venja sig af að koma með vikuskammtinn í einu lagi. Ég er kannske rétt búin að tæma, kem niður í þvottahús og þá flæðir upp úr óhreinatausdallinum. Doddi og Tanya litu við og fengu sér kaffi í sólinni á pallinum góða. Eftir hádegi komu svo Grenvíkingarnir mínir. Veðrið var svo gott að við fengum okkur kaffi og með´ðí úti. Odda útréttaði eitthvað og blessaðir ungarnir hennar og amma gamla voru hér á meðan. Þau fóru svo öll upp á sjúkrahús að hitta litlu hetjuna. Ágúst litli er alveg ótrúlega flottur, framfarir eru líka alveg með ólíkindum. Hann fær að fara aðeins heim á morgun, kominn í gips og allt virðist gróa mjög vel. Frábærar fréttir það.
Hóffa mín leit svo til mín seinnipartinn. Við drukkum kaffi og spjölluðum um alla heima og geima. Langt er liðið síðan við höfum hist til að spjalla og þótti mér þetta notaleg stund. Hlakka til að hitta þig aftur Hóffa mín
Eftir heimsókina komu Grenvíkingarnir svo og snæddu með okkur djúpsteiktar rækjur áður en haldið var heim á leið.
Bubbi, Malla og Steinunn Helga komu svo rétt eftir kvöldmat. Hjónin héldu áfram austur á bóginn til móts við eldri dótturina sem er að koma til Akureyrar frá Neskaupstað en Steinunn ætlar að gista hér þessa helgina.
Góður dagur eins og þeir eru ávallt þegar góða gesti ber að garði, maður er nefnilega manns gaman
24.7.2008 | 10:15
Komin heim í leit að ró!
Við hjónin fórum til Reykjavíkur á mánudag, strax og búið var að pússa okkur saman og komum aftur heim í gær. Valur var ákveðinn í að eyða að minnsta kosti tveimur dögum (heilum), jafnvel þremur í borginni, en við vorum varla komin á staðinn þegar hann fór að tala um að fara aftur heim. Okkur tókst samt ætlunarverkið en það var að finna ljós á pallinn á skikkanlegu verði. Okkur langaði nefnilega í nokkra staura, en verðið á einum ca. 20 cm háum staur er á bilinu 15-70 þúsund krónur sem okkur þótti náttúrulega fáránlegt, fyrir utan að efnahagurinn hefði ekki leyft mörg þannig. Við sem sagt keyptum fimm ljósastaura (ekki götu), skoðuðum helstu verslunarmiðstöðvar, hittum vini og ættingja þó ekki hafi verið stoppað lengur. Talandi um verslunarmiðstöðvar þá þoli ég ekki slík fyrirbæri. Þegar ég kem inn í Kringluna og ég tala nú ekki um Smáralindina þá fæ ég innilokunarkennd og missi mátt úr mínum fíngerða skrokki. Ó mæ god hvað mér leiðist þessi fyrirbæri og yfirhöfuð verslanir, eins og það er þó gaman að koma heim með eitthvað fallegt úr slíkum túrum. Ég er meiri svona kaffihúsakerling en verslunarkerling.
Dagurinn á að fara í að ákveða hvar ljósin eiga að vera, ég er nú ekki sérlega flink í slíku, hef í raun ekki miklar skoðanir á ljósum eða staðsetningu þeirra, veit ekki af hverju. Er bara svona, mér væri sama þó hér væru bara rússneskar krónur, tek ekki eftir útliti króna og staura, vil bara lýsinguna.
Ég reikna með að líta líka á litla frænda minn, hann Ágúst Má en hann liggur á barnadeildinni. Það var hann þessi litla elska sem lenti fyrir bílnum á Bónusplaninu. Skelfilegt slys en sem betur fer er útlit fyrir að hann nái sér. Við fórum með mótorhjól til hans í gær og litla skottið var eins og fullorðinn maður þegar hann sagði mér að sér liði bara óvenjuvel núna. Hann hélt greinilega ró sinni, þó auðvitað sé hann með sársaukaverki í öllum skrokknum, enda allur bólginn og marinn frá tám og upp á hvirfil. Augun bæði sokkin og andlitið allt bólgið. Ég dáist að litlu hetjunni hvað hann er sterkur. Má þakka fyrir að ekki fór ver, hjól bílsins fóru yfir fót hans og það má greina för á enninu eftir hluta af dekki, það hefði ekki verið að sökum að spyrja ef bíllinn hefði farið yfir höfuð, brjóst eða kviðarhol. Við vonum bara að litli skúrfélaginn, eins og Valur kallar hann, jafni sig fljótt og vel á næstu vikum.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 10:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.7.2008 | 10:30
Góðan og blessaðan...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
20.7.2008 | 13:11
Sól, sól skín á mig!
Rólegheit í kringum okkur síðustu daga. Mest höfum við setið úti á fallega pallinum okkar og sleikt sólina loksins þegar hún áttaði sig á að það er sumar á skerinu og hún á ekkert með að vera í vetrarfríi.
Ágætisveður eins og ég sagði og yndislegt hér suðvestan hússins. Við fengum góða gesti í gær. Fyrst kom Heimir og svo Doddi og Tanya. Bubbi fór með vinnufélögum í Vaglaskóg til að grilla og djamma, en við Valur grilluðum okkur hér heima. Snæddum út á palli í kvöldsólinni og eftir frágang renndum við til tengdamömmu. Þá var ferðinni heitið inn á Þverá í golf. Við spiluðum einn hring en hann tók okkur tvo tíma þar sem við vorum þrjú að spila. Tókum okkur góðan tíma og gekk bara þokkalega. Besti árangur okkar beggja þetta sumarið, þarf reyndar ekki að vera góður til að hljóta þann sess. Eftir golf komu skötuhjúin heim með okkur fengu sér kaffisopa. Bræðurnir fóru í pottinn en konurnar sátu undir hitaranum og spjölluðu, svona eins og enskukunnáttan leyfði. Tanya er forvitin um líf Íslendinga áður fyrr og veltir ýmsu fyrir sér, meðal annars hvernig fólk komst af hér í þessu landi þar sem kuldi og vindur leikur um flestar árstíðir og lítill skógur og engin kol í jörðu. Bubbi minn kom heim um eittleytið, búinn að fá nóg af djammi enda tekið á því nóttina á undan líka. Gestirnir fóru að ganga tvö í nótt, þá duðruðumst við hjónaleysin fram yfir þrjú en fórum þá að sofa. Sváfum eins og englar til ellefu í morgun. Fullmikill svefn að mínu mati og illa farið með daginn, en það þýðir ekkert að tala um það, verður ekki bakkað. Stefnan er sett á golf í dag, annað hvort út á Grenó eða jafnvel í Mývatnssveit, veðrið er svo gott, um að gera að nýta það, ekki víst það haldi.
Fleiri myndir hér sem Tanya tók, takk fyrir að deila þeim með okkur Tanya!
Farin út í sólina með Heimsljós, hafið það gott í dag!
Vinir og fjölskylda | Breytt 21.7.2008 kl. 00:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
17.7.2008 | 20:06
Framkvæmdum að ljúka!
Við erum núna búin að fá nóg af smíðum olíuáburði og brasi í garði og palli. Pallurinn er búinn nema það á eftir að smíða tvö hlið og ég á eftir að fara aðra umferð með olíu á dótið allt saman. Hliðin bíða bara annað hvort haustsins eða næsta vors, en hitt kemur, umferðin fyrri verður nú að fá að þorna. Við skelltum okkur í RL store og keyptum tvo stóla og dúkkuborð til að setja við þilið, þar verður sko gott að sitja á kvöldin, eins og sjá má á myndinni hér til hliðar. Varð nú að skella mér út með myndavél og taka nokkrar myndir af herlegheitunum, minna má það nú ekki vera. Ég er alveg ógeðslega ánægð með árangurinn. Ekki er ég síður stolt af litlu sætu plöntunum mínum (voru sko litlar og sætar fyrir fjórum árum), kvistarnir hvítu hamast við að blómstra eins og sjá má á myndinni hér á hægri hönd. Flottur brúðarkvistur. Hér erum við búin að setja punktinn, engar framkvæmdir það sem eftir er árs hvorki úti né inni. Átti reyndar að ljúka eldhúsinu fyrir jólin en ég er ákveðin í að geyma það fram á vor, svo kemur í ljós hvort það stenst. Veðrið var bara fínt bæði í gær og dag. Sól skein í heiði og hér á pallinum okkar var mjög hlýtt þó norðanáttin væri köld og mjög hvöss. Hann spáir svo bæði rigningu og kulda á morgun og sýndist mér helgin ekki féleg. Í næstu viku er stefnan sett á borg óttans, þá verður ábyggilega farið að rigna þar og komið hið besta veður hér. En hvaða máli skiptir það? Maður er manns gaman og til þess förum við í höfuðborgina, að hitta fólk!
Myndir af pallinum og plöntum hér!
15.7.2008 | 09:39
Aldrei fór ég suður?
Þegar við Valur gerum áætlun þá stenst hún aldrei, hvernig sem á því stendur. Við sem sagt ætluðum okkur að renna í borg óttans í dag, Valur nýtti tímann í gær í að skipta um bremsuklossa og þurfti þá endilega að sjá að lega er farinn í framhjóli. Nú þá þarf bara að skipta sagði ég, en það er víst ekki svona auðvelt. Hringt var í umboðið og þar var okkur tjáð að legan kosti ekki nema 50 þúsund kall.. Þá var hringt í N1 (gamla Bílanaust) og þar fékkst stykkið á tæpan 14 þús kall. Auðvitað var varan ekki til á Akureyri svo panta þurfti dótið. Við vonum að þetta komi í dag svo hægt verði að renna suður eftir hádegi á morgun.
Mest var nú dundað hér heima fyrir í gær. Valur lauk reyndar við að setja utan um pottinn og gerði rammann fyrir skjólvegginn. Við keyptu svo það sem vantaði af efni í hann og þá þarf að rigna. Dagurinn fer líklega í ekki neitt. Vorum að vona að við gætum lokið við vegginn en nennum því varla í norðangarra og rigningu. En þetta verk hleypur ekki frá okkur frekar en öll önnur og því bara að halda ró sinni, ég er nú svo flink í slíku. Þetta kemur allt saman fyrir sumarlok, verð bara að draga Heimsljósið aftur fram, lagði því vegna annarra anna.
Þá vona ég að dagurinn fari vel með ykkur, sunnanfólk búið ykkur undir komu norðanskæruliða. Yfir og út!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.7.2008 | 23:13
Athena Líf á göngu!
Athena í næstum því fyrsta göngutúrnum sínum. Skellti sér í hann á afmæli frænku sinnar. Athena er hins vegar eins árs 24. júlí.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)