Aldrei fór ég suður?

Þegar við Valur gerum áætlun þá stenst hún aldrei, hvernig sem á því stendurTounge. Við sem sagt ætluðum okkur að renna í borg óttans í dag, Valur nýtti tímann í gær í að skipta um bremsuklossa og þurfti þá endilega að sjá að lega er farinn í framhjóli. Nú þá þarf bara að skipta sagði ég, en það er víst ekki svona auðvelt. Hringt var í umboðið og þar var okkur tjáð að legan kosti ekki nema 50 þúsund kall.W00t. Þá var hringt í N1 (gamla Bílanaust) og þar fékkst stykkið á tæpan 14 þús kall. Auðvitað var varan ekki til á Akureyri svo panta þurfti dótið. Við vonum að þetta komi í dag svo hægt verði að renna suður eftir hádegi á morgunLoL.

Mest var nú dundað hér heima fyrir í gær. Valur lauk reyndar við að setja utan um pottinn og gerði rammann fyrir skjólvegginn. Við keyptu svo það sem vantaði af efni í hann og þá þarf að rigna. Dagurinn fer líklega í ekki neitt. Vorum að vona að við gætum lokið við vegginn en nennum því varla í norðangarra og rigninguWoundering. En þetta verk hleypur ekki frá okkur frekar en öll önnur og því bara að halda ró sinni, ég er nú svo flink í slíkuWink. Þetta kemur allt saman fyrir sumarlok, verð bara að draga Heimsljósið aftur fram, lagði því vegna annarra annaJoyful.

Þá vona ég að dagurinn fari vel með ykkur, sunnanfólk búið ykkur undir komu norðanskæruliðaSmile. Yfir og út!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þið komið bara með góða veðrið aftur norður  :) það spáir þessu fína veðri hérna fyrir sunnan næstu daga :) um að gera njóta þess.

kv Hadda G

Hadda G (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 08:56

2 Smámynd: Sigríður Jóhannsdóttir

Urðum að fresta suðurferðinni vegna vandræða í sambandi við varahlutaþjónustu á skerinu okkar góða. Komum líklega með sólina að norðan í næstu viku

Sigríður Jóhannsdóttir, 16.7.2008 kl. 12:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband