Bongó!

Ekkert lát á blíðunni í dag og heldur ekkert lát á letinni. Valur segist vera í sumarfríi og þá má maður sko liggja í leti, spila golf, borða góðan mat og drekka guðaveigarSmile . Allt þetta gerum við óspart þessa dagana. Dagurinn var sem sagt heldur rólegur og góður. Sváfum til tíu í morgun og fórum í golf um hádegi. Eftir það var sólin sleikt eins og mögulegt er og pallurinn notaður til þess verknaðar. Við auðvitað grilluðum og borðuðum úti og höfðum það notalegt. Ég var að koma inn nú rétt í þessu, vel hægt að sitja úti frameftir miðað við hitann í lofti, yndislegtJoyful . Helgin framundan og handan hennar vinnan, best að njótaSmile !

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Flott

Jónína Dúadóttir, 31.7.2008 kl. 08:04

2 Smámynd: Sigríður Jóhannsdóttir

Jebbs, sumar, sumar, sumar, loksins!

Sigríður Jóhannsdóttir, 31.7.2008 kl. 10:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband