Ég vil fara að fá ljós............!

Föstudagkvöld, ekkert yndislegra. Tilhugsunin um að geta bara vaknað í fyrramálið og haft það notalegt, lesið blöð og dundað mér fram eftir morgni án þess að þurfa að vera einhvers staðar er eitthvað það besta sem ég veit. Líklega er ég bara svona skelfilega löt að eðlisfariWink. Jólaundirbúningurinn fer nú samt að fara af stað hjá mér. Ég er reyndar aðeins byrjuð. Farin að gera jólagjafir og skrifa á kortin fyrir mömmu mína blessaða. Annars er ég skemmtilega laus við jólastress. Ég tek lífinu með ró, enda annað bara rugl. Dunda mér við laufabrauðsgerð einn laugardaginn í byrjun desember og hendi í eina og eina smákökusortKissing. Maðurinn sér um allar skreytingar bæði inni og úti, nema hvað ég hengi upp jólaóróana mínaSmile. Það fer nú að koma tími á ljós utandyra, eftir að snjóinn tók að mestu upp er frekar dimmt, ljósin lýsa upp tilveruna og reyndar sálarskammirnar líkaWhistling.

DSC00473Nóvember er heilmikill afmælismánuður í fjölskyldunni. Auður Sif á afmæli á morgun, verður loksins 14 ára gellan súWizard. Hana ætlaði pabbi minn heitinn að fá í afmælisgjöf, en hann var fæddur þann níunda og reyndar amma á Hlöðum líka (mamma pabba), en Venni, bróðir pabba, fékk stelpuna í 79 ára afmælisgjöf í staðinn og var ekkert lítið vígalegur yfir því, enda alveg ástæða til. Auður Sif er falleg stelpa bæði að innan og utanHeart. Til hamingju með morgundaginn Auður mín elskuleg!InLove

Vonandi verður kvöldið ykkur notalegt elskurnar mínar og ekki síður helgin. Yfir og út!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna Dúadóttir

Leti er góð,um helgar.Til hamingju með skvísuna

Birna Dúadóttir, 7.11.2008 kl. 19:20

2 Smámynd: Sigríður Jóhannsdóttir

Já, leti er sko góð um helgar og takk

Sigríður Jóhannsdóttir, 7.11.2008 kl. 19:54

3 Smámynd: Guðrún Jónína Eiríksdóttir

Hafðu góða helgi og ekkert finnst mér skrítið þótt rifist væri um svona sæta stelpu. Til hamingju með hana.

Jólahvað? Ég er ekki jólastress kerling enda ætla ég bara að gera sem minnst enda löt.   

Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 7.11.2008 kl. 22:13

4 Smámynd: Sigríður Jóhannsdóttir

Já hún Auður er svo sæt þessi elska. Ég er líka löt Dúna mín og líður óskaplega vel með það

Sigríður Jóhannsdóttir, 7.11.2008 kl. 22:23

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Elsku Sigga mín, leti er stór hluti af okkar sjálfsögðu mannréttindumTil hamingju með öll þessi afmæli, svakalega er hún falleg frænkuskvísan þín

Jónína Dúadóttir, 8.11.2008 kl. 05:33

6 Smámynd: Sigríður Jóhannsdóttir

Það er bara freka notalegt að vera latur, ég er mjög löt núna og líður vel með það. Nú er sæta orðin 14, takk fyrir hamingjuóskir

Sigríður Jóhannsdóttir, 8.11.2008 kl. 09:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband