26.6.2008 | 10:15
Afmæli!
Þegar ég loksins reif mig á fætur í morgun var Valur löngu búinn að hella upp á og farinn að lesa blöðin. Ég skil ekki hvað ég get sofið, en hann blessaður alltaf á fótum með hröfnunum.
Blómvöndurinn sem skreytir færsluna er settur í tilefni þess að Valur á afmæli. Í dag er hann sem sagt 44 ára karlinn. Ég bauð honum út að borða í gær, í afmælissteik og nú á eftir þarf ég að fara og finna einhverja sæta gjöf handa þessari elsku.
Til hamingju með daginn ástin mín!
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:16 | Facebook
Athugasemdir
Til hamingju með manninn
Jónína Dúadóttir, 26.6.2008 kl. 20:16
Takk fyrir það Ninna mín
Sigríður Jóhannsdóttir, 26.6.2008 kl. 20:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.