Er alveg snarlifandi!

Helgin fór að vanda vel með okkur heimilisfólkið og reyndar kettina líka. Á föstudagskvöldið litu vinkonur mínar þær Helga og Sigrún á pallinn til mín. Við sátum góða stund og spjölluðum um daginn og veginn. Sigga Indriða rétt leit við til að fá sér kaffisopa en hún kom að sunnan til að vera á réttum í Grýtubakkahreppi. Ég fór ekki, en verð að fara að koma mér í heimsókn heim, ég sakna Grenivíkur og enn meira sakna ég fólksins míns, en það hef ég ekki séð lengiWoundering´. Úr því verð ég að bæta um næstu helgi. Á sunnudag hringdi svo Steinunn Helga til mín og vildi endilega fá mig á blakleik. Ég hafði ekki hugmynd um að Norðurlandamót í blaki U-19 var haldið í KA heimilinu en Steinka er í því liði. Ég auðvitað dreif mig og sá þær vinna Norðmenn 3-2 og ná með því bronsinuWizard. Verð að segja að ég var búin að gleyma hversu gaman er að horfa á blakJoyful. Steinka stóð sig auðvitað með sóma, flott stelpa hún litla frænka!Heart

 Gekk og gekk í dag, það var nefnilega umhverfisdagur í vinnunni og held ég hafi fengið of stóran skammt af súrefni, er eitthvað svo syfjuðWhistling. Fer snemma að sofa í kveld. Farið vel með ykkur elskurnar mínar og vona ég að vinnuvikan reynist ykkur létt og góðGrin


Bubbi orðinn afi:)

Hér getur að líta nýjasta ættingjann. Þetta er Kútur barnabarn Bubba bróðurTounge

Enn...

...og aftur er komin helgi, notalegt eins og alltaf. Þessi vika hefur verið svolítið erfið. Ég haltraði fram eftir henni, fann svo til í hnénu, en það skánaði um hana miðja. Slappleiki einhvers konar tók þá við og honum fylgdi alzheimer light með ótrúlegri gleymsku og rugli, mér meira að segja datt í alvöru í hug að sá skæði sjúkdómur væri að byrja, en líklega væri ég ekkert meðvituð um það ef það er raunin, enda er ég betri núnaWink. Að öðru leyti hefur allt gengið sinn vanagang, við hjónin fengum reyndar brúðargjöf á þriðjudag. Elskulegir vinnufélagar mínir færðu okkur svona líka flotta olíulampa til að hafa á pallinum okkar fína. Ljósið af þeim er svo yndislegt í húminu að það liggur við að ég taki niður rafmagnsljósin, eldur er svo miklu rómantískariInLove. Hins vegar þarf auðvitað að vakta hann betur en rafmagnið svo það má alveg hafa þetta í bland, stundum kveikt á hvoru tveggja, stundum njóta eldanna og stundum tækninnar.

Ég á svo von á því að Sigrún og Helga, vinkonur mínar líti til mín þegar líður á kvöldið, við ætlum sko að njóta haustblíðunnar, sitja úti og spjallaJoyful. Á morgun ætlum við Valur í golf, líklega með seinustu svoleiðis ferðum þetta árið. Njótið helgarinnar elskurnar mínar, það ætla ég svo sannarlega að gera. Þar til síðar, yfir og út!


Notalegheit!

Við höfum notið helgarinnar út í ystu æsar. Á föstudagskvöldið djammaði ég aðeins með samkennurum mínum, nauðsynlegt að gera eitthvað annað en vinna með því góða fólki. Ég var nú samt ekkert frameftir nóttu á því djammi, enda varð ég að vera hress og kát á laugardagkvöldi. Tilefni þess djamms er nefnilega fimmtugsafmæli Gunnhildar vinkonu minna sem býr á GrenivíkWizard. Við Valur vorum komin til hennar um sexleytið í gærkveldi. Þar var auðvitað húsfyllir enda Gunnhildur góð heim að sækja. Hitti ég þar marga af æskuvinum mínum, suma þeirra hef ég ekki séð lengi, í áratugi held ég að óhætt sé að segja. Virkilega ánægjuleg kvöldstund.  Við komum ekki heim fyrr en að ganga eitt í nótt en skelltum okkur í pottinn þrátt fyrir það ásamt Tönyu og Dodda. Það er fátt betra en að fara í heitan og góðan pott í húminu, við kertaljós og slaka vel á. Skríða svo í yndislegt rúmið sitt og sofa eins og engill fram á næsta dagSleeping, þannig á sko lífið að vera, þess á að njóta og það höfum við hjónin svo sannarlega gert þessa helgina.

Í dag er svo afmælisveisla hjá Ágústi Má litla frænda. Hann verður samt ekki fimm fyrr en 2. september en þar sem reiknað er með að hann fari í aðgerð í vikunni, þar sem fjarlægja á teina úr fæti hans, heldur hann upp á það í dag.Wizard

Hafið það gott í dag kæru vinir nær og fjær og farið varlega í umferðinniWink


Afmæli!

Varð að skella inn litlum hamingjuóskum til Bubba bróður, hann á afmæli í dag. Til hamingju með daginn kæri bróðir.Wizard

Þriðjudagur var það heillin!

Þessa dagana er lítið annað gert en að vinna, éta og sofaWink . Reyndar fórum við fjórir starfsmenn úr Síðuskóla í dag upp á Jaðarsvöll og kepptum í golfi við kollega okkar úr Glerárskóla. Það var mjög gaman þó ég hafi nú verið með þeim lakari í íþróttinni en það kom ekki svo að sök þar sem keppt var í Texas schramble, en þá spila tveir saman og það er alltaf lengra höggið sem gildirTounge . Við Maggi Jónatans vorum saman og hann er góður karlinn. Hins vegar töpuðum við með fjórum höggum, enda golfkennari í hinu liðinu, en Bibbi og Palli tóku hitt parið með sjö höggum og vann því Síðuskóli með þremurWizard . Þetta var virkilega gaman. Ég hef aldrei spilað á svona flottum velli og var þetta því mikil upplifun, auk þess sem ég fékk far í golfbíl í fyrsta skipti á ævinniWink . Ég velti því nú fyrir mér hvort hollustan er ekki að mestu fyrir bí þegar ekki er einu sinni gengið á eftir kúlunni, en Maggi er mjög slæmur í mjöðminni og getur ekki gengið þetta og bévítans bíllinn fer hraðar en ég gangandi svo ég hafði ekki mikið valKissing . Á morgun er svo kennsludagur númer tvö á þessu skólaári, sá fyrsti var bæði ruglingslegur og erfiður, einhvern veginn fór mitt góða skipulag fyrir ofan garð og neðan, hvernig sem á því stendur. Reyndar veit ég nokkurn veginn hvernig á því stendur og því kippt í liðinn, svona er bara lífið ekki getur það alltaf verið létt og fullkomiðErrm . Vikan bráðum hálfnuð, tíminn fljótur að líða. Nú er ég þreytt og ætla að fara að sofa, góða nótt vinir mínir nær og fjær!Sleeping

Ekki rættist draumurinn!

Ekki urðum við Ólympíumeistarar í handknattleik karla eins og ég hélt. Ég var ef satt skal segja alveg viss, en svona er þetta bara, við fengum þó silfrið og það má alveg sætta sig við það, við eigum næstbesta lið í heimiWizard.

Helgin fljót að líða. Á föstudagskvöldið komu Sigrún, Siggi og Björk, samkennarar mínir hingað og við spjölluðum góða stund, fyrst inni, svo úti á palli, þegar stytti upp og svo aftur inni af því uppstyttan hélst ekki lengiWink. Við sváfum frameftir á laugardagmorgun og upp úr hádegi renndi ég austur í Fornhóla, tók þar Sigrúnu og saman fórum við í heimsókn til Hafdísar og Hörpu austur í Halldórsstaði. Við fengum gott kaffi, fyrir rest var það gottSmile og með því auðvitað, þannig er það alltaf þegar maður heimsækir Hafdísi. Við stoppuðum góða stund en heim var ég komin rétt um kvöldmat sem Valur sá um að þessu sinni og gerði það með sómaJoyful. Doddi og Tanya litu í gærkveldi og eftir að þau fóru skelltum við hjónin okkur í pottinn. Það er yndislegt að liggja í honum í myrkrinu og horfa upp í stjörnubjartan himininn. Við skriðum ekki inn í rúm fyrr en að verða tvö í nótt og vorum auðvitað vöknum upp úr sjö, öll á heimilinu, ákveðin í að sjá Íslendinga landa gullinu á leikunum fyrrnefndu, en við vorum ekki á vellinum og því fór sem fórWhistling.

Vinnuvikan framundan, löng og ströng, en hún líður samt ábyggilega hratt, þannig er það þegar gaman er í vinnunniJoyful. Þar til síðar, yfir og út!


Ísland, best í heimi!

Sagði ég ekki, við erum alveg að verða ólympíumeistararWizard , verðum það á sunnudagsmorgun þegar við tökum Frakkana og rúllum þeim samanWink

Áfram Ísland!

Ég bara þori ekki að sleppa því að skrifa þetta á bloggið mitt. Konan sem gifti sig á mánudegi (til mæðu) og hefur aldrei talið sig hjátrúarfulla, eða trúarfulla yfirleitt, tekur nú engan sjénsWink . Næsta skrefið að meistaratitlinum verður nefnilega tekið á morgun. Rúllum Spánverjum upp! Áfram ÍslandWizard  . Svo vona ég að Óli Stef. fái að jafna sig á sigurvímunni áður en tekið er viðtal við hann  „bíb“W00t , yndislegt þetta viðtal við hannHeart

Grenivíkurgleði og góðir gestir!

Ég var búin að gera langa ritgerð hér á bloggið en gerði svo einhvern andsk... svo að allt hvarf eins og dögg fyrir sólu eða maturinn af diski mínumWink , heldur fúlt þegar maður gerir eitthvað sem veldur þessu. Hins vegar var ég nú bara að segja vinum og ættingjum aðeins frá síðustu helgi. Hún var góð skal ég segja ykkur. Á föstudagskvöldið fylltist pallurinn okkar og potturinn af góðum gestum. Systkini Vals komu hér öll með tölu í spjall og notlegheit. Laugardaginn tókum við rólega en fórum um kvöldið á Grenivíkurgleði sem er árlegur viðburður hjá íbúum Grýtubakkahrepps. Mikil fjölskylduskemmtun sem á rætur að rekja til svokallaðs götugrills. Þá flykktust íbúar hverrar götu fyrir sig (þær eru sko heilar þrjárErrm ) út á götu (lokuðu þeim án leyfis enda ekki mikil umferð) með grill, húsgögn og góða skapið. Farið var í leiki við börnin og eftir að þau voru farin inn að sofa skemmti fullorðna fólkið sér mismunandi langt fram eftir nóttu við söng og spjall.Smile  Fyrir nokkrum árum tóku ungir eldhugar það að sér að halda utan um þessa skemmtun, allir koma saman á tjaldstæðinu með húsgögn, grill og góða skapið og njóta lífsins. Gleði þessari hefur vaxið fiskur um hrygg, nú hefst hún á föstudagskvöldi og lýkur seint á aðfaranótt sunnudags, svona allt eftir því hversu lengi hinir fullorðnu endast eftir að búið er að koma ungviðinu í svefnJoyful . Leiktæki eru á staðnum fyrir krakkana, trúbadorar syngja fyrir alla aldurshópa, útidansleikur er fyrir alla aldurshópa, Gunni og Felix hafa síðustu tvö ár komið og skemmt öllum aldurshópum og svo mætti lengi teljaW00t . Sem sagt mikið stuð. Við vorum reyndar bara borðhaldið á staðnum, heyrðum aðeins í trúbadornum og Gunna og Felixi auk þess sem barnaballið var nógu snemma fyrir okkurTounge . Heim vorum við komin að ganga tólf og ég sofnaði í sófanum um leið og ég lagðist í hann, held ég bara.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband