30.11.2008 | 11:31
Pestarbæli!
Á heimilinu átti að nota helgina sem er alveg að verða búin í að gera allt mögulegt. Ég ætlaði að gera laufabrauð á föstudagskvöld, halda matarboð á laugardagskvöld og setja upp seríur. Maðurinn ætlaði að setja ljós úti en yfirleitt fer að minnsta kosti einn dagur í það hjá honum blessuðum. En ekkert af þessu varð að veruleika. Maðurinn veiktist á fimmtudag og er búinn að vera með hita og kvef síðan, ég, sem aldrei fæ pestar var með bæði kvef og hausverk dauðans á föstudagsmorgun. Fór auðvitað í vinnuna en gat svo ekki meir eftir hana. Í gær var ég reyndar hressari og ætlaði svo sannarlega að standa við matarboðið, en þá var annar gesturinn fastur í leiðindaveðri heima hjá sér, út á Grenivík og hinn lá í magapest svo því var sjálfhætt. Þegar leið á daginn kom í ljós að það var lán í óláni að svona fór, ég nebblega fékk svona líka heljarinnar magapest svo ekki hefði ég orðið skemmtilegur gestgjafi. En Hóffa og Ninna, ég veit þið lesið stundum bullið í mér, þið eruð ekkert lausar, við reynum aftur í janúar Laufabrauðsgerðin frestast fram að næstu helgi og þá verða jólaseríur einnig settar upp úti fyrir að minnsta kosti. Ekkert stress hér, aðventan rétt að byrja og þrjár helgar meira en nóg til að gera það sem gera þarf
Hafið það gott elskurnar mínar, þar til síðar kveð ég glöð og kát, laus við maga- og hausverki að mestu
Athugasemdir
Ég er með smá kvef,held ég láti það dugaEigðu góðan dag
Birna Dúadóttir, 30.11.2008 kl. 11:45
Já, endilega að láta það duga, hitt er ógeð og hafðu það líka gott í dag Birna mín
Sigríður Jóhannsdóttir, 30.11.2008 kl. 12:44
Mig langar sko alls ekkert til að losna mín kæraHafðu það best í dag og vonandi fer pestin að fara eitthvað annaðBestu kveðjur frá einni sem les stundum bullið þitt
Jónína Dúadóttir, 30.11.2008 kl. 13:18
Já, sendum þessa pest bara eitthvað langt upp í fjall þar sem enginn býr, veit þú varst ekkert að reyna að sleppa. Hafðu það gott í dag mín kæra
Sigríður Jóhannsdóttir, 30.11.2008 kl. 15:00
Bullum sull og magapest, gott bland eða þannig. Hafðu það gott.
Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 1.12.2008 kl. 21:53
Ógeð, en heilsan er löngu komin í nokkuð svona eðlilegt horf. Takk sömuleiðis Dúna mín
Sigríður Jóhannsdóttir, 2.12.2008 kl. 21:32
Gott að pestin er farin
Birna Dúadóttir, 3.12.2008 kl. 08:39
Farið hefur fé betra
Jónína Dúadóttir, 3.12.2008 kl. 09:21
Já svo sannarlega hefur sko farið fé betra
Sigríður Jóhannsdóttir, 3.12.2008 kl. 16:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.