30.10.2008 | 20:35
Listamaðurinn ég???
Síðustu helgi tók ég mig til og gerðist listakona. Mér nebblega datt í hug sl. vetur að kaupa borðlampa í IKEA og smella glermósaíki utan á þá. Ég keypti sem sagt lampa og hafa þeir beðið óþreyjufullir upp í skáp eftir því að listamaðurinn fengi yfir sig andann. Og viti menn, í mesta annríkinu undir helgi kom andinn og þá er sko ekki að sökum að spyrja. Andinn leyfir manni sko varla að sofa
. Það er sko ekkert grín að vera listamaður
Athugasemdir
Líst mér vel á þig kona
Birna Dúadóttir, 30.10.2008 kl. 20:41
takk, ég er ógisslega ánægð með þennan.
Sigríður Jóhannsdóttir, 30.10.2008 kl. 20:47
Glæsilegt hjá þér
Hóffa (IP-tala skráð) 30.10.2008 kl. 21:29
Takk Hóffa mín
Sigríður Jóhannsdóttir, 30.10.2008 kl. 21:31
Þú ert listamaður mín kæra, þessi lampi er flottur
Jónína Dúadóttir, 31.10.2008 kl. 05:48
Kærar þakkir elskurnar mínar
Sigríður Jóhannsdóttir, 31.10.2008 kl. 07:31
Algjör listalampi. Knús og kveðjur.
Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 31.10.2008 kl. 13:30
Takk Dúna mín, knús og kveðjur til þín og þinna
Sigríður Jóhannsdóttir, 31.10.2008 kl. 19:45
Þú verður ekki í vandræðum með að eyða tímanum á fimmtudagskvöldum ef Mr. Marteinn Mosdal fær að stjórna
Jónína Dúadóttir, 1.11.2008 kl. 14:09
Nei Ninna mín, mér leggst eitthvað til það er ég viss um. Marteinn yrði ábyggilega ekkert verri en það sem við höfum
Sigríður Jóhannsdóttir, 1.11.2008 kl. 16:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.