25.10.2008 | 15:16
Hef verið á kafi!
Ég hef verið löt síðustu dagana við þessa bloggsíðu mína. Ekki nein ein ástæða heldur að minnsta kosti tvær. Annars vegar er mikið að gera hjá mér varðandi blessaða vinnuna og hins vegar þá er tölvan mín svo leiðinleg. Reyndar ekki tölvan heldur er nettengingin að stríða okkur. Allt eitthvað svo hægvirkt að ég bara nenni ekki að standa í þessu. Annars er bara allt meinhægt hjá okkur hér í Stafholtinu. Valur er að mestu niðri í bílskúr að dunda við nýja hjólið og Bubbi sést ekki oft hér á efri hæðinni þessa dagana. Hann segir að nú sé nördahelgi, hún lýsir sé þannig að einn eða fleiri félagar hans koma með tölvurnar sínar og þeir leggja undir sig kjallarann. Þar sitja þeir og drepa menn hægri, vinstri. Þeir kalla þetta að lana, ekki spyrja mig af hverju, líklega eitthvert andskotans útlenskt orð sem ekki nokkrum manni hefur dottið í hug að íslenska. Ég þoli ekki svona óþarfa slettur, íslenskan okkar má ekki við því. Hún er líka það eina sem við eigum orðið eftir, útrásarvíkingum datt sem betur fer ekki að reyna að veðsetja hana, hefðu sjálfsagt reynt hún væri veðtæk, græðgin og frekjan virðist hafa náð öllum völdum í kroppum þessara manna.
Nóg í bili, er núna að fara að búa til jólagjafir, enda ekki nema átta og hálf vika í jólin. Ó, ég hlakka svo til
Athugasemdir
Jamm það er ekki nema átta og hálf vika til jóla
Birna Dúadóttir, 25.10.2008 kl. 15:33
Bara æðislegt og ég hlakka svo til eins og öll hin börnin...
Jónína Dúadóttir, 25.10.2008 kl. 16:32
Sigríður Jóhannsdóttir, 26.10.2008 kl. 18:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.