4.10.2008 | 23:10
Laugardagur til lukku!
Góður dagur liðinn. Ég gerði mest lítið eins og mín er von og vísa á laugardegi. Fyllti reyndar á ísskápinn og las blöðin auk þess sem ég renndi í heimsókn til Ninnu minnar. Hana er svo sannarlega gott heim að sækja. Konan hafði átt afmæli daginn áður og ég var nú svo heppin að hafa komist að því áður en ég fór af stað og gat á hana blómum bætt. Hóffa vinkona okkar kom meðan ég stoppaði og áttum við saman ákaflega skemmtilega stund. Takk fyrir mig vinkonur þetta var gaman og við verðum nú bara að gera okkur einhvern hitting aftur
Eiginmaðurinn sprangar nú um húsið á sundskýlunni einni fata, er á leið í pottinn í kuldanum. Ég ætla að láta mig hafa það að elta hann. Farin í sturtuna og svo út í kuldann, mér er það til efs að þetta sé mjög hollt, eða hvað, fara Finnar ekki úr gufunni og út í snjóskafla svo......? Myndir úr kuldanum
Vonandi verður það sem eftir lifir kvölds ykkur dásamlegt og sofið vel og vært í nótt elskurnar mínar.
Athugasemdir
Jamm það er ekki leiðinlegt að hitta fyrir þessar tværBrr pottur,kuldi
Birna Dúadóttir, 5.10.2008 kl. 03:09
Segir ísdrottningin, en þetta var helvíti kalt, það er að segja að fara oní og uppúr
Sigríður Jóhannsdóttir, 5.10.2008 kl. 11:00
Birna Dúadóttir, 5.10.2008 kl. 11:14
Allavega þá er hér pottur kominn niðrí pallinn og hann skal notaður hvað sem tautar og raular, ég hlakka til að sjá mennina, sem réðu þessum pottkaupum, fara útí í stórhríð
Sigríður Jóhannsdóttir, 5.10.2008 kl. 11:44
Góðan daginn mín kæra og takk fyrir komuna í gær, þetta var ofsalega gaman
Jónína Dúadóttir, 5.10.2008 kl. 12:33
Frábært að hittast í gær. Ómetanleg að eiga góðar stundir með dásamlegum vinum . Hlakka til næsta hittings:)
Hollt eða ekki hollt, -alltaf gaman
Hóffa (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 13:30
Takk fyrir skemmtunina í gær báðar tvær og ég hlakka sko líka til næsta hittings
Sigríður Jóhannsdóttir, 5.10.2008 kl. 13:46
Sömuleiðis báðar tvær
Jónína Dúadóttir, 5.10.2008 kl. 16:32
Ég segi bara aftur brrrrrrrrrrrrr
Birna Dúadóttir, 6.10.2008 kl. 12:24
Aðalvíkingurinn stóð nú úti í frostinu á sundfötunum einum fata og tók myndir skal ég segja ykkur. Birna mín, þetta er álíka og að fá sér ís í frosti
Sigríður Jóhannsdóttir, 6.10.2008 kl. 16:54
Fáið ykkur bara ís í pottinum... ég ætla að kaupa mér hlýja úlpu
Jónína Dúadóttir, 6.10.2008 kl. 17:35
Góð að fá þér úlpu Ninna mín, kannske ég fái mér úlpu og fari í henni í pottinn
Sigríður Jóhannsdóttir, 6.10.2008 kl. 20:40
Það væri svindl
Jónína Dúadóttir, 6.10.2008 kl. 21:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.