21.7.2008 | 10:30
Góðan og blessaðan...
...daginn. Fallegur dagur, konan komin í sitt fínasta púss og maðurinn líka. Ákváðum að láta pússa okkur saman hjá sýslumanni í dag
. Við erum búin að hanga saman í heil tíu ár og allt gengið stóráfallalaust svo við bara gerum þetta löglegt, kominn tími til
. Eftir það ætlum við að skella okkur til Reykjavíkur. Sjáumst heil elskurnar mínar!
Athugasemdir
Hamingjuóskir á brúðkaupsdaginn!
Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir, 21.7.2008 kl. 10:57
Innilegar hamingjuóskir á brúðkaupsdaginn elsku vina mínÓskaðu þessum svakalega heppna manni... bráðum eiginmanni þínum, til hamingju frá mér líka
Jónína Dúadóttir, 21.7.2008 kl. 12:27
Kærar þakkir, þetta tók fljótt af! Orðin lögleg eiginkona núna
Sigríður Jóhannsdóttir, 21.7.2008 kl. 12:38
Hvar er svo brúðkaupsmyndin ?
Jónína Dúadóttir, 21.7.2008 kl. 12:51
Dásamlegt, hjartanlega til hamingju kæru hjón
Megi Guð og gæfan halda áfram að fylgja ykkur á ævinnar braut
Hlakka til að sjá brúðkaupsmyndina frú Sigríður
Hóffa (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 16:30
Enn og aftur þakkir kæru vinkonur. Heim er ég komin og halla undir flatt. Eiginmaðurinn er ekki mikið borgarbarn og ég í raun ekki heldur.
Sigríður Jóhannsdóttir, 23.7.2008 kl. 23:02
Hæ elskurnar, það var gaman að fá að hitta ykkur á brúðkaupsdaginn og enn og aftur til hamingju. Kveðja Rut og Co
Rut og fjölskylda (IP-tala skráð) 23.7.2008 kl. 23:20
Sömuleiðis elskurnar mínar, gaman að hitta ykkur eins og alltaf!
Sigríður Jóhannsdóttir, 24.7.2008 kl. 09:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.