2.7.2008 | 14:50
Góðan og blessaðan...
....daginn! Veitir ekki af að óska Norðlendingum þess í þessu frábæra veðri. Velti því fyrir mér hvert ég á að flytja, ekki gæti ég búið í höfuðborginni, veit að ekki rignir minna þar en hér (hef sko reynt það) þó sú sé ekki raunin nú í augnablikinu. Held bara að ástandið sé að verða eins og á myndinni hér til hliðar. Hins vegar segja veðurfræðingarnir að þetta horfi til betri vegar og þá er bara að vona að spáin þeirra rætist. Helgin ku eiga að vera góð, best að vera bjartsýn. Ég gæti nú svo sem notað tímann og reynt að gera eitthvað, ég á til dæmis að kenna námsefni sem ég hef aldrei kennt fyrr næsta skólaár, annars vegar stærðfræði (nýja námsefnið) og hins vegar náttúrufræði, en ég bara nenni ekki að líta á þetta ef satt skal segja og ég er nú af ólygnum komin! Eins minnir mig að það sé gaman að lesa, en það er bara svo langt síðan ég hef tekið bók í hönd, mér til skemmtunar það er að segja, að ég er ekki viss um að ég kunni það lengur. Máske ég prófi!
Athugasemdir
Sigga mín, þetta með að hjóla og þá líka lesa, rifjast strax upp, bara skella sér í það
Jónína Dúadóttir, 2.7.2008 kl. 15:03
Já, Ninna mín, ég rifjaði lesturinn upp og réðst til atlögu við Heimsljós, Laxness. Hef reyndar lesið hana áður. Ég er nú ekki búin með hana þó ég hafi verið mjög snögg að komast upp á lagið, hugsa að hún endist mér út sumarið
Sigríður Jóhannsdóttir, 2.7.2008 kl. 21:02
Ég viðurkenni vanmátt minn gagnvart Laxnes.... ég man samt alveg hvernig á að lesa, mér bara leiðist hann
Jónína Dúadóttir, 3.7.2008 kl. 06:17
Ég man líka hvað mér leiddist hann þar til ég las Sölku Völku og Sjálfstætt fólk, þær sögur þótti mér hafa allt. Heimsljós minnir mig að hafi allt líka, er að rifja það upp, læt þig vita í haust.
Sigríður Jóhannsdóttir, 3.7.2008 kl. 07:33
Held niðri í mér andanum.... Ég er löngu búin að ákveða að gefa honum sjens, einhvertímann, þegar ég hef alls alls ekkert annað að gera
Jónína Dúadóttir, 3.7.2008 kl. 07:49
Æi elskan mín, ekki gera það, þá verð ég að flýta mér svo þú kafnir ekki. Blessuð vertu ekkert að gefa honum séns, það er engin skylda, þetta er bara snobb. Ekkert mál að komast gegnum lífið án Laxness
Sigríður Jóhannsdóttir, 3.7.2008 kl. 08:10
...og nú ætla ég að halda áfram að snobbast, lesa nokkrar blaðsíður fyrir hádegi!
Sigríður Jóhannsdóttir, 3.7.2008 kl. 08:11
Þú snobbuð ? Jæja, alltaf fréttir maður nú eitthvað nýtt
Jónína Dúadóttir, 3.7.2008 kl. 08:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.